Ráðstefnur í sérflokki
Radisson BLU Hótel Saga býður sex glænýja og vel búna ráðstefnu- og fundarsali sem henta jafnt fyrir stóra sem smáa viðburði. Salirnir hafa allir verið endurnýjaðir frá grunni og henta fyrir stórar og minni ráðstefnur.
Allir eru salirnir búnir besta fáanlega tækjakosti og geta gestgjafar að sjálfsögðu haft tæknimann viðstaddan kjósi þeir það. Við sjáum einfaldlega um að að allt sé eins og þú vilt hafa það.
Sérhæft starfsfólk í ráðstefnudeild leggur sig í líma við að veita gestum úrvalsþjónustu og veitingar við hæfi. Boðið er upp á tvær tegundir fundarpakka - allt eftir tilefni.
Lykilorðin í þjónustunni eru fagmennska og sveigjanleiki. Við sjáum til þess að allt standist upp á punkt og prik.
Yfirlit yfir fundarsali