Ráðstefnur og fundir

 

Radisson Blu Hótel Saga býður vel búna ráðstefnu- og fundarsali sem henta jafnt fyrir stóra sem smáa viðburði. Salirnir  voru allir endurnýjaðir frá grunni árið 2007 og þar er meðal annars að finna húsgögn eftir danska hönnuðinn Arne Jacobsen, s.s. Oxford-stólana og hinn fræga stól Svaninn, sem upphaflega var hannaður fyrir Radisson BLU Royal-hótelið í Kaupmannahöfn. Einn hinna nýju sala státar t.d. af 24 slíkum stólum sem móta einstaka umgjörð hans. Hver salur býr þannig yfir eigin sjarma og ráðstefnu- og fundarsalir gerast ekki glæsilegri.

 

Allir eru salirnir búnir besta fáanlega tækjakosti og því á allt að ganga snurðulaust fyrir sig. Flatskjáir hafa nú leyst skjávarpa af hólmi, þráðlausar mýs auðvelda fyrirlesurum framsetninguna og gestgjafar geta að sjálfsögðu haft tæknimann viðstaddan kjósi þeir það. Við sjáum um að allt sé eins og best hentar hverju sinni.

 

Sérhæft starfsfólk í ráðstefnudeild leggur sig í líma við að veita gestum úrvalsþjónustu og veitingar við hæfi. Boðið er upp á þrjár tegundir fundarpakka allt eftir tilefni. Tekið er á móti ráðstefnuhöldurum áður en ráðstefnan hefst, farið yfir allar óskir og séð til þess að allt standist upp á punkt og prik. Lykilorðin í þjónustunni eru fagmennska og sveigjanleiki. Allt sem þarf er eitt símtal til okkar og við finnum hvað hentar hverju sinni. Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 525 9932.

Fundarsalaleiga.pdf